Ég er alltaf farin að skilja betur og betur hvers vegna þau gömlu héldu sig á sömu þúfunni þrátt fyrir að mér þætti það alveg ægilega leiðinlegt þegar ég var ellefu ára eða svo. Það er nefnilega svo ótrúlega leiðinlegt að pakka.
Þegar ég fór til Englands, varð ég að skera svo við nögl þar sem ég tók með mér, að það var ekkert flóknara eða meira en að pakka fyrir utanlandsferð. (Allavega svona í minningunni).
Svo stend ég frammi fyrir því að koma öllu draslinu í bílinn minn sem er ekki beint gerður fyrir flutninga. Úff, úff. Og samt sér ekki högg á vatni með bækurnar mínar t.d. Mér dettur nefnilega ekki í hug að taka þær allar með mér, svona með tilliti til þess að kjallaraíbúðin sem ég mun búa í Akureyri, er ekki sérstaklega stór. Ég er heldur ekki viss um hvað ég ætti að gera við megnið af þeim, sérstaklega þar sem ég á margar bækur sem ég hef varla litið í. Stundum óska ég þess að BookCrossing væri stærra fyrirbæri á Íslandi eða kannski hef ég bara ekki komið á staðina þar sem það væri heppilegt að skilja bók eftir í þeim tilgangi að einhvern annar taki hana upp og lesi. Þetta er örugglega vegna þess hversu dýrar bækur eru á Íslandi, allavega þær sem koma út á íslensku.
Svo hef ég pínu áhyggjur af því að búa í náinni göngufjarlægð frá Eymundsson og svo líka fornbókabúð þarna á Akureyri.
bók eftir Minette Walters í bókabúðinni áðan, þegar við vorum að kaupa afmælisgjöfina hennar mömmu (nýja safnbókin hans Þórarins Eldjárns).
Klárt að Mínetta var keypt, nú er bara að reyna að treina hana til næstu utanlandsferðar.  Ef þið hafið ekki lesið neitt eftir hana, þá mæli ég sterklega með henni, reyndar sérstaklega eldri bókunum.  Snilldarreyfarar.
Þegar fer að vora svona eins og undanfarið, langar mig ekkert meira en að lesa góðar bækur. Það er eitthvað við sumarið sem fær mig til að dreyma um að flatmaga í sólinni og lesa eitthvað stórvirki.
Af því tilefni uppfærði ég listann minn undir flipanum Bestu bækur allra tíma. Þar er nú kominn enn lengri og ítarlegri listi í stafrófsröð.
Ef þið eruð eins og ég, hvet ég ykkur að drífa ykkur á bókasafnið og fylla svo náttborðið af meistaraverkum, hvort sem þau eru erlend eða íslensk!!
Var að klára þrjár bækur; Pan, Loftskeytamanninn og Viktoríu eftir Knut Hamsun. Mæli með þeim öllum fyrir rómantíkera!
þetta hér!  Hvenær ætli það komi út?  Á viðráðanlegu verði, það er að segja...
Sit hérna í Perlunni í matartímanum að blogga. Er að vinna hérna á bókamarkaði og langar að benda veiðimönnum á að hér er úrval veiðibóka á frábæru verði. M.a. eru Stangaveiðihandbækurnar á mikið lækkuðu verði og videospólan Silungur á Íslandi á 390. kr. Markaðurinn er opinn til 9. mars frá kl: 10-18 alla dagana.
Kem með ferskar fréttir á morgun.
hér heima í dag, matarboð í kvöld enda var íbúðin gersamlega í rúst.  Veitir ekki af að sparka aðeins í afturendann á sér til að laga ástandið.
Reyndar ekki bara tiltekt, nú er búið að færa bækurnar hans Finns í hilluna hans, fórum í gegn um hilluna hennar Freyju sem var gersamlega stútfull af bókum, plantað í 4 hrúgur, Freyju hrúgu, Finns hrúgu, geyma hrúgu (bækur sem eru of barnalegar fyrir þau en tímum ekki að láta) og svo gefa/henda hrúgu.  Veit einhver hvort það er einhver staður sem tekur við bókum eins og notuðum fötum?
allar þessar bækur?
Var að vandræðast með stafla af bókum sem ég kom hvergi fyrir í dag, Jón Lárus stakk upp á bókabrennu í garðinum...
Hér má skoða tilnefndar bækur í keppni um flottustu bókarkápuna. Þarna inni á milli má sjá kynlega kvisti.
Til dæmis ljósmyndabók með blárri kápu. Hún lítur út eins og kennslubók í félagsvísindum. Það er ástæða fyrir því að ljósmyndir eru oftast á kápu ljósmyndabóka. Það er flottara.
Svo er biblían þarna. Gamla góða. Ég ætla ekki að halda því fram að kápan á nýju biblíunni sé ljót. En við getum slegið því föstu að þetta sé ekki mjög frumlegt.
Dauði trúðsins líka. Þarna má sjá mynd af útitröppum.
Flottasta kápan þarna er að mínu mati Sagan af Bíbí Ólafsdóttur. Ég var bara að fatta það núna fyrst að Béin mynda bragga. Sneddí.
Mig langaði bara að deila með ykkur þeim bókum sem ég hef verið að reyna að lesa þessa stundina. Ég er aldrei bara með eina bók í einu í gangi og þ.a.l. eiga þær til að safnast upp og eru lesnar á mismunandi tímum eftir því í hvaða hugarástandi ég er þá stundina. Þessar þrjár fyrstu eru reyndar hljóðbækur sem ég hef hlaðið niður af vefsíðunni www.audible.com þar sem ég er áskrifandi af einhverjum mánaðarlegum kreditum sem ég get notað til þess að festa kaup á svona hljóðbókum eins og hér fyrir neðan.
Ég er mikið fyrir að nýta tímann í það að hlusta á hljóðbækur í bílnum þar sem ég get öðlast þekkingu á einhverjum hlut sem vekur áhuga minn milli þess sem ég snattast til og frá í vinnu eða hverskonar erindagjörðum sem ég er þá stundina. Reyndar á maður stundum til að zona út í umferðinni en mér hefur nú svona þokkalega tekist að takast á við að hlusta. Nýbúinn að klára The Seven Habits of Highly Effective People eftir Steven R. Covey í hljóðformi og er nú nýbyrjaður á The Portable M.B.A. in Entrepreneurship. Hún er reyndar vita tilgangslaus þegar kemur að minni vinnu og nýtist mér ekkert endilega í starfinu en þar sem ég hef ekki í hyggju að vinna hjá hinu opinbera endalaust þá þykir mér gott að fræðast um aðra hluti atvinnulífsins. Byrjar ágætlega og þó löng sé (sex klst) þá ætla ég mér að komast í gegnum hana og læra eitthvað af henni. Á meðan bíða hinar þolinmóðar eftir að ég ýti á Play.
Þessar hér fyrir ofan eru þessar sem ég hef við höndina á hverjum degi. Ég reyni alltaf að hafa bók nálægt mér því það er ótrúlegt hvað það getur oft skapast dauður tími til þess að lesa nokkrar síður. Þ.a.l. er ég mikill aðdáandi vasabóka, eða lítilla og handhægra bóka sem komast fyrir í úlpuvasanum mínum og eru oftar en ekki mjög illa farnar eftir þesskonar meðferð þegar ég er loksins búinn með þær.
Eins og gefur að skilja þá er ég mislangt kominn í þessum bókum vegna fyrrgreindra lesvenja. T.d. er ekki hægt að koma The Mixing Engineers Handbook auðveldlega fyrir í vasa hjá stærstu mönnum þannig að ég er ekki mikið fyrir að taka hana með mér í röðina í Bónus.
Og já, Stjáni. Ég er ALVEG að verða búinn með Rant. Hefur bara ekki gripið mig á þann hátt að ég hef aldrei verið í neinu sérstöku stuði fyrir hana. Ég er einhvernveginn farinn að breytast á þann veg að ég fíla handbækur um hluti sem ég er ekki að læra á einhvern hátt athyglisverðari.
1: Harðspjalda eða kilja, og hvers vegna?
Kiljur kaupi ég frekar því þær eru girnilegar og virðast einhvern veginn fljótlesnari :) Harðspjaldabækur vilja láta taka sig alvarlega.
2: Ef ég ætti bókabúð, myndi ég kalla hana...
Bókabéus, og ég myndi sérhæfa mig í ævintýra- og skáldsögum.
3: Uppáhalds frasinn minn úr bók (nefnið titilinn einnig)
„Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu."
(Fegurð himinsins. 1. kafli. - Heimsljós eftir Halldór Laxness)
4: Höfundurinn (lifandi eða dauður) sem ég vildi helst borða hádegismat...
Valið stendur á milli Roald Dahl sem myndi segja mér einhverja kaldhæðnislega sögu með óvæntum endi eða Astrid Lindgren sem ég myndi spyrja út í Bróður minn Ljónshjarta og Elsku Míó minn.
5: Ef ég væri að fara á eyðieyju og mætti bara taka með mér eina bók, væri það
Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness og ef ekki hún, þá Wuthering Heights eftir Charlotte Bronte.
6: Það væri frábært ef einhver fyndi upp svona bókatæki sem myndi...
vera hægt að tylla þannig að maður missi ekki bókina ofan á andlitið þegar maður er alveg að sofna í rúminu á kvöldin. Nei, ég tala ekki af reynslu...
7: Lyktin af gamalli bók minnir mig á...
þegar ég las Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng með ömmu þegar ég var lítil.
8: Ef ég gæti verið aðalhetjan í bók (nefnið titilinn) væri ég...
klárlega Súsanna í bókunum um Narníu. Væri kannski líka gaman að vera Dumbledore í Harry Potter-bókunum eða Heathcliff í Wuthering Heights.
9: Ofmetnasta bók allra tíma er...
bók sem ég er nýbúin að lesa, The Great Gatsby. Einu orði sagt - LEIÐINLEG. Varð að komast að því hvað var svona frábært við hana (hún er t.d. lesin í ensku í framhaldsskólum). Fegin að ég þurfti ekki að gera það.
10: Ég þoli ekki þegar bækur...
fylgja formúlu og maður veit algjörlega hvað gerist næst. Sumar eru samt þannig að maður heldur að maður viti hvernig framhaldið verður en svo gerist eitthvað óvænt. Það eru velútpældar bækur.
Allir að setja þetta á bloggið hjá sér og svara þessum spurningum!
Í kjölfar furðulegrar endurútgáfu á gamalli bók sem kallast Tíu litlir negrastrákar hafa ýmsir mótmælt því harðlega að hér sé rasismi á ferðinni. Að mati þessa fólks vilja þeir sem gagnrýna endurútgáfuna helst stunda ritskoðun og bókabrennur. Já, er það ekki klassísk umræðuaðferð að forðast eins og heitan eldinn að tala um kjarna málsins?
D.W. Griffith átti ekki von á gagnrýni vegna rasisma þegar hann gerði The Birth of a Nation, sem upphaflega hét The Klansman, árið 1915. Fyrir honum vakti að segja epíska sögu um hörmungar borgarastyrjaldarinnar í Bandaríkjunum samkvæmt þeirri algengu söguskoðun þess tíma að göfugir hvítir suðurríkjamenn hefðu verið órétti beittir af norðanmönnum og ágjörnum blökkumönnum sem vildu færa skörina uppá bekkinn.
Í myndinni er það hinn huggulegi félagsskapur Ku Klux Klan, sem kemur á röð og reglu þegar blökkumenn eru farnir að vilja fullmikið uppá dekk. Myndin er talin marka upphafið að kvikmyndum í fullri lengd og því um margt merkileg í sögulegu ljósi. Hún var geysilega vinsæl á sínum tíma en hlaut jafnframt harkalega gagnrýni. Fyrir nútímamanninn er hún auðvitað með ólíkindum. Hinn kunni bandaríski kvikmyndagagnrýnandi Roger Ebert orðaði það eitt sinn svo að þetta væri ekki vond mynd vegna þess að hún styddi hið illa. Líkt og Sigur viljans eftir Leni Riefenstahl væri þetta frábær mynd sem styddi hið illa.
Kannski er erfitt að bera saman gerðir hryðjuverkasamtakanna Ku Klux Klan og að því er virðist hinar saklausu barnagælur Tíu litlir negrastrákar. En er það svo? Er hægt að horfa framhjá því að þessi bók á sér sögulegar rætur í viðhorfum sem lýsa mikilli mannfyrirlitningu? Erum við á einhvern hátt bara stikkfrí frá því?
Í þessu sambandi rifjaðist upp fyrir mér atriði úr hinni frábæru dönsku dogma-mynd Festen þar sem annar svipaður texti er notaður í svipuðu samhengi af einni miður geðslegri persónu myndarinnar.
Ég er að tala um elsta bróðurinn í hinni hrjáðu fjölskyldu. Í byrjun myndarinnar kemst hann að því að systir hans á blökkumann fyrir kærasta. Hann reynir að varpa honum á dyr en þegar það gengur ekki hefur hann upp raust sína í veislunni og það fer ekkert á milli mála að hverjum söngurinn beinist né til hvers. Það óhugnanlega er að gestirnir byrja að taka hressilega undir, eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Nú má spyrja sig; taka gestirnir undir án þess að gera sér grein fyrir málavöxtum eða vita þeir algjörlega hvað klukkan slær og finnst það bara allt í lagi?
Og í framhaldinu; nú þegar Ísland er ekki lengur einsleitt samfélag heldur fjölþjóðlegt, hver er munurinn á hegðun veislugestanna og því að endurútgefa söguna um negrastrákana og verja uppátækið með því að afneita rasískum uppruna hennar?
(Pistill í 07/08 11.10.07)
ef þið eruð ekki búin að lesa sjöundu Potter bókina skuluð þið ekki fara hingað.
Ef ykkur er alveg sama um bækurnar, hafið ekki/ætlið ekki að lesa þær hafið þið ekkert á hlekkinn að gera hvort sem er.
Þyrsti ykkur hins vegar í meiri vitneskju um persónurnar eftir lok bókarinnar er þetta skemmtileg lesning.