Ég hefði ekki þurft að læra Lisbon sáttmálann, né nokkuð annað... Ég hefði semsagt ekki þurft að eyða síðustu 2 dögum í stresskasti, svefnleysi og lystarleysi því þetta próf var ekkert erfitt! Bara búið á nóinu, og afþví að ég gat svarað öllu, þá er ég að sjálfsögðu farin að velta því fyrir mér hvort að ég hafi kannski smá oggu poggu ef til vill fallið... mætti halda að maður væri haldinn sjálfseyðingarhvöt!
Ef að kennari brosir, og segir svo "you survived" hvernig í andskotanum á maður að túlka það???
En það góða er allavega, að þetta var sigur fyrir sálina. Sigur að fara í munnlegt próf og gera sitt besta, og lifa það af, sem er klárlega egóbústið sem ég þarf á að halda fyrir næsta, sem er á föstudagsmorguninn. Því það er einmitt próf sem ég sleppti að taka, af hræðslu minni við munnleg próf, á síðustu önn. Svo sama hvernig fer, þá ætla ég að fara þarna inn og gera mitt allra allra besta!
Af einhverjum ástæðum finnst mér ég líka vita heldur mikið meira um environmental politics núna heldur en í janúar :p
Jæja, kominn háttatími fyrir stressaðar stelpur.
Ísland eftir viku.... mjög mjög mjög blendnar tilfinningar.
Fyrst að Írar höfnuðu Lisbon sáttmálanum, ætli það þýði að ég þurfi SAMT að læra hann fyrir prófið á þriðjudaginn??
Sem er, bæ ðe vei, klukkan HÁLF NÍU um kvöldið! Ég veit ekki á hvaða lyfjum ég var þegar ég skráði mig...  Hefði helst viljað klára þessa próftíð ekki seinna en í gær...
Ég er búin að vera í íþróttabuxum í viku. Fyrir utan þegar ég mætti í pilsi í eitt próf og fór svo út í sólbað í stuttbuxum. Annars alveg í heila viku, mega sexý....
En já, mér tókst að vakna í bæði prófin, þrátt fyrir 2 tíma svefn fyrir fyrra prófið og 3 tíma svefn fyrir það seinna. Sem er jú í lagi, enda er enginn svefn jafn réttlátur og yndislegur og kúr eftir próf, mmmmmm =)
Búið að ganga ágætlega, ég vona nú að þetta sleppi allt saman, en ég er orðin mjög, mjög þreytt. Mér finnst ég vera búin að vera í nánast stanslausri lærdómstörn síðan í lok mars. Fyrir utan góðar pásur með Lilju og Fjólu... Svo er hugurinn ekki hérna lengur, hann er á tjaldsvæðunum... Og ég er farin að sakna miðnætursólarinnar. Og systra minna, allra. Og svo langar mig líka að vera skotin í einhverjum... mega langt síðan ég hef verið skotin í einhverjum =(
Já, og Írar eru komnir í hóp þjóða sem ég þoli ekki í augnablikinu. Þeir deila fyrsta sætinu með Svíum, sem að munu alltaf, alltaf vinna keppnina. Að hafna Lisbon í þjóðaratkvæðagreiðslu af því að þeir skildu hann ekki! Halló! Fyrst að ég skildi fjárans sáttmálann, þá hljótið þið að geta gert það líka! Svo eru þeir heldur ekkert sætir...
Ég tosa svo mikið í hárið á mér, að ég sver það að það verður allt farið af eftir viku...
Ok, búin að snúa við sólarhringnum, svo ég ætla að læra meira og meira og meira.
takk fyrir kommentin sæta fólk =)
Knús í krús
Margrét Helga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í Evrópusambandinu =)
Ég hugsa rosalega mikið í próftíð.
Ég var að lesa mbl.is, og þá hugsaði ég, að í fyrsta skiptið í mörg ár, þá langar mig virkilega til að taka þátt í kvennahlaupinu. Veit ekki hvort það sé vegna þess að ég held að ég sé loksins búin á gelgjunni, eða vegna þess að í fyrsta skiptið í mörg ár, gæti ég virkilega skokkað skemmtiskokkið án þess að drepast á leiðinni... Fyndið hvað það er mikið sem maður ætlar að gera á næsta ári, eða í næstu viku... Í fyrra ætlaði ég að taka mér sumarfrí á næsta ári, og var í rauninni harðákveðin í því þangað til gengið fór á flug, og ég fékk af einhverjum sálrænum ástæðum kaupsýki á sama tíma... Þannig að ég stefni á sumarfrí... á næsta ári.
Ok, ég ætlaði að skrifa meira, og líka um ægilegar sápupælingar sem að leiddust útí pælingar um fyrrverandi tilvonandi ástmanninn sem var að senda mér póstkort og kom öllu af stað aftur sem að leiddust útí pælingar um rússíbanann sem að sálarlífið mitt er búið að vera í síðasta árið... En Steini var að senda mér Íslensku Leiðina á pdf, húrra fyrir honum! Svo núna ætla ég að lesa áður en ég dembi mér í síðustu tvo kaflana í Europe Recast. Metnaðurinn er ekki að gera sig fyrir þetta próf, plús ég fékk tak neðst í bakið í gær þegar ég dröslaðist með 20kg kassann minn á pósthúsið (sem var svo lokað og það var rigning og ég fór næstum því að grenja..) svo ég hef nú bara áhyggjur af því hvernig ég eigi að ná því að sitja 2 tíma próf á grjóthörðum stól :S
Þeir á Íslandi sem verða vaknaðir klukkan 6 á mánudagsmorguninn, mega hringja í mig, ég er dauðhrædd um að sofa yfir mig!
Bæjó
Það er svo gaman að svona niðurtalningum... vúhhú!
Eftir 15 daga, þá verð ég ekki að læra! Sei sei nei. Þá ætla ég að vera að gera eitthvað annað, sem ég er ekki búin að ákveða... Eins og kannski bara ekki neitt =)
Ég er hætt að vorkenna sjálfri mér fyrir að vera ennþá í prófum. Því ég er að lesa um sjálfbæra þróun, og það er svosem margt verra í heiminum en að vera í prófum til 20. júní... Eins og að vera í prófum til 30. júní...
Annars líða dagarnir allt of hratt! Fór í Ikea á laugardaginn, og kom heim með slatta af pappakössum. Var búin að fylla þá á 10 mín, og hef ekki snert þá síðan...  Mun taka mér klukkutíma pásu á morgun til að druslast með þetta niður á pósthús, vonandi... Komst líka að því á mánudaginn, þegar þrumuveðrið var hálfnað, að niðurfallið útí porti var stíflað. Og vatnið var ca 4-5cm frá því að leka inní íbúðina mína. Það var ekki skemmtilegt... en ég er trukkur og lagaði niðurfallið =)
Fór svo á Sex and the City í gær. Og það tók 3 klukkutíma takk fyrir! Belgar greinilega ekki að flýta sér í bíói... jesús! Og ég varð fyrir smá vonbrigðum með myndina, segi ekki annað! Samt er ég ennþá að hugsa um hana, og þarf pottþétt að fara aftur, til að skoða fötin betur...
Og þó ég gæti talað illa um Belgíu, og Belgakjánana í marga, marga daga, þá finnst mér samt mega sorglegt að vera að fara heim :(
Jæja, pásan búin, á eftir að lesa soldið mikið í dag, og ég hafði hugsað mér að hlaupa einhverja kílómetra líka, í spandexbuxum... úje =)
Pabbi minn á afmæli í dag, til hamingju með afmælið!
Ok, bæ!
Hver sá sem að hefur gengið í gegnum próftíð með iðnaðarmenn vinnandi í næstu íbúð/húsi, og lifað það af er vinsamlegast beðinn um að setja sig í samband við mig. Því það er verið að gera upp húsin báðum megin við mig. Og fjárans þrjóskan í mér, að klára áður en ég fer að sofa, gerði það að verkum að ég fór ekki að sofa fyrr en undir morgun. Ég held ég hafi náð 4 tímum áður en hamarshöggin byrjuðu báðum megin við mig. Eyrnatappar virka ekki á þetta, öll bókasöfn eru stútfull af hávaðasömum Belgum, þannig að ef að þetta heldur áfram eru miklar líkur á að ég komi heim, og fari beinustu leið inná geðdeild. Án gríns... Ég veit alveg að ég fer yfirleitt í gegnum próftíðina á 4-5 tíma svefni á nóttu, en það á ekki að byrja þegar það eru heilir 10 dagar í fyrsta próf!
Annars er ég hálfnuð með BA ritgerðina mína. Og það er mikil, mikil gleði. Fyrir utan þá staðreynd að mér finnst þessi ritgerð vera tímamótaverk og afskaplega, afskaplega merkileg... að sjálfsögðu. Á morgun á ég svo fund við manninn sem að vinnur fyrir umhverfisráðuneytið í sendiráðinu í Brussel, og eftir þann fund verð ég vonandi komin með góðan ramma fyrir framhaldið. Og ég er búin með öll verkefni hérna, svo það er ekkert eftir nema frumlestur ca 7 greina, og þá er ég opinberlega betur stödd fyrir þessa próftíð heldur en nokkra aðra sem ég hef farið í, í mínu háskólanámi. Víííí =) Rosalegur dugnaður í gangi...
Og ég eldaði plokkfisk í gær! Alveg hellings helling! Í fyrsta skiptið sem að það er fiskur í matinn á þessu heimili síðan ég kom til Belgíu. Því að Fjóla sá alltaf um að elda fiskinn...
Jæja, hætt að vorkenna mér. Ætla í bað og stunda svo hugleiðslu, eða eitthvað sem virkar til að útiloka þessi hljóð, og halda lestrinum áfram. Þeir sem að villast ennþá hingað inn mega endilega skilja eftir spor, það gleður mitt litla hjarta óendanlega á þessum langa, langa lokaspretti....
Mig langar samt mest bara að fara að sofa...
Kyss og knús
Magga
Það versta við þessar síðustu vikur, er að það eru nánast allir aðrir komnir í sumarfrí... Ég les öll blogg svona 6 sinnum á dag, held ég sé búin að skoða prófílinn hjá öllum vinum mínum á facebook, og þeir eru 161. Ég er meira að segja farin að lesa blogg hjá fólki sem ég þekki ekki baun í bala, og hef aldrei á ævi minni séð! Sorglegt en svona er þetta...
Held ég sé hálfnuð með BA, allavega hálfnuð með það sem ég var búin að ákveða að skrifa, sendi inn efta ritgerðina í síðasta skiptið í nótt og gerði eitt critical comment á bókasafninu áðan. Sem þýðir að ég á bara eitt eftir. Loksins búin að ákveða hvað ég ætla að skrifa um, bara best að bretta upp ermarnar og klára það! Því ég veit vel að ég fer ekki að sofa fyrr en það er búið... þekki mitt fólk...
Um leið og öll verkefni eru búin get ég líka farið að slökkva á tölvunni, sem betur fer, hef engan sjálfsaga...
mega leiðinleg færsla, sorrý... þær verða allar megaleiðinlegar næstu 29 dagana...  Það prumpaði samt einhver á bókasafninu áðan... í þessum hita líka.. ó mæ! ógeð! Og það var hápunktur dagsins =)
Farin að kaupa mér súkkulaði, mig langar svoooo
2 vikur í fyrsta prófið... úje!
Ciao!
Ójá... eftir 4 vikur verð ég vonandi búin með síðasta prófið mitt í stjórnmálafræði... Var einmitt í síðasta tímanum á þriðjudaginn, rosalega skrítið...
Allar ritgerðir og verkefni búið, nema 2 critical comments sem ég nenni engan vegin að pæla í... Og upplestrarfríið hafið. Ég ætla reyndar bara að nota helgina í að vinna í BA ritgerðinni og koma mér aftur í hlaupaform, ekkert búin að geta hlaupið útaf þessari sýkingu, en það á að vera orðið gott núna.
Annars er ég búin að panta flugfarið mitt heim. Á bókað sæti með Eurostar kl 16 held ég 24. júní, og svo flug til Íslands klukkan 21. Hlakka mikið mikið mikið til að koma heim, enda eru næstu 4 vikurnar hérna ekkert rosalega spennandi... Kem svo til Akureyrar 25. júní og byrja vonandi að vinna 26. júní. Þá verð ég líka búin að knúsa þessa í kaf...
Best og sætust, og sakna hennar helling...
Ef ég ætlaði að segja eitthvað merkilegt, þá er ég búin að steingleyma því, svo ég ætla að hella mér aftur í ritgerðina í smá stund fyrir svefninn...
Kyss og knús til Íslands!
Ég á að vera að skrifa ritgerð... Og hvað er þá betra en að blogga bara, svona á meðan ég bíð eftir að Desperate Housewifes er búið að streemast?!
Og no worries mamma... ég er búin með 4 bls og ritgerðin á bara að vera 5... sem er ástæðan fyrir að ég er í pásu, ég er að hugsa um hvað ég ætla að taka úr þessu.
En já. Ég fór til Þýskalands í síðustu viku. Í einu skónum sem ég komst í, sem voru einhverjir sandalar. Og það var MEGA sárt þegar sólin skein á fótinn minn :( Og mér leið ömurlega að geta ekki gengið og eyðileggja allt fyrir Fjólu og Gerðu frænku sem við gistum hjá. En ég á svo klára fjölskyldu! Gerða lánaði mér hjólið sitt, svo að ég þurfti ekki að labba neitt, heldur hjólaði bara út um alla Mainz, sem hér eftir verður kallaður bleiki bærinn. Æm in lov! Er án gríns alvarlega farin að íhuga það að læra þýsku á næsta ári, Þýskaland er ódýrara en Belgía, og jeminn hvað það er fallegt! Vorum líka með svo góðan gæd =)
Hér erum við Fjóla á æði stað í Mainz, að bíða eftir bestu samloku í heiminum =)
Um kvöldið fórum við svo á eitthvað sem ég veit ekki hvað heitir, þegar fólk fær einhvern ákveðinn tíma uppi á sviði og getur performerað. Flestir voru nú að lesa einhver ljóð á þýsku og ég skildi ekki baun í bala, bara einstaka orð. En það var samt mjög fyndið.
Hér eru Fjóla og Gerða fyrir utan lestarstöðina í Mainz. Við vorum á leiðinni til Frankfurt og Gerða var að fara að læknast. Hún er sko mega góður læknir! Svo eyddum við fimmtudeginum í Frankfurt, fengum okkur þýskan bjór og bretzel, sem ég lifi nú alveg af án þess að borða aftur á ævinni, kíktum í búðir og túristuðumst og lékum japanska túrista. Svo um leið og við fórum á lestarstöðina þá byrjaði að rigna. Smá stress að ná lestinni frá Köln til Liége, og ég var ekkert að hjálpa systur minni með töskurnar heldur, og svo helli helliringdi þegar við vorum komnar til Leuven. Svo það var bara pöntuð pizza og horft á dvd, mega kósí =)
Og á föstudeginum var það Brux, innflytjendahverfið, Atomium í 3ja skiptið á þessu ári, ég var nú ekki skemmtilegur gæd, soldið þreytt á þessu... Og aðeins verslað og tékkað á pissukarlinum og svona skemmtilegt. Og new mexico um kvöldið. Og let´s just say að það sé búið. Ég held ég sé búin að borða þarna 12 sinnum, og ég er komin með nóg... loksins. Og á laugardeginum vorum við að dúlla okkur, og versluðum svo helling og höfðum það kósí og nenntum ekki einu sinni út um kvöldið. Enda er miklu skemmtilegra að fara í gegnum fataskápinn sinn með systur sinni og fíflast. Og á sunnudeginum fórum við í langan labbitúr um Leuven og ég sýndi Fjólu allt sem ég gat ekki sýnt henni síðast, tékkuðum á froskakynlífi og meira skemmtilegt. Einn bjór á Oude og svo heim að kúra. Ég fíla systur mína. Hún er æði, það var æði að fá hana. Enda fór ég bara pínu að skæla þegar lestin hennar var farin í morgun =( Þangað til hún hrindgi í mig frá Liége til að segja mér að Thalys lestinni hefði seinkað um hálftíma, sem þýddi að hún missti af lestinni frá Köln til Frankfurt. Smá stress að finna aðra lest og komast á völlinn í tæka tíð, en það reddaðist alveg fyrst ég er að tala við hana á msn núna =)
Hér er Fjóla í garðinum að leita að froskakynlífi... djók, það er bara ég sem er með það á heilanum... en falleg brú samt =)
Annars er síðasta prófið mitt 20 júní, og þegar ég er búin með þessa ritgerð ætla ég að fara að panta mér flugfar heim. Stefnan er að koma heim til Íslands 24 júní, til Akureyrar 25 og helst að byrja að vinna 26! Hlakka mikið til, mikið að gera þangað til, en það verður afskaplega gott að komast heim.
Og af sólbrunanum mínum er það að frétta að ég fór að flagna. Helling! En það er að lagast. Enda er ég búin að vera óvenju upptekin af brjóstunum á mér undanfarna daga, alltaf að plokka skinnið.
Ok, núna ætla ég að klára þessa fjárans ritgerð og fara svo að kúra undir góðu góðu sænginni minni. Það er sko kalt úti og ég á bók, um shopaholic... and a sister =)
Sorrý hvað þetta var löng færsla. Heimsóknunum hingað fer reyndar stórminnkandi, en það fylgir víst sumarfríum og próflokum... brotna ekki!
Knús til allra
Ég virðist ætla að vera fastagestur heilbrigðisstofnana í hverju einasta landi sem ég bý í. Og þess vegna get ég sagt af fullu hjarta: Guði sé lof fyrir EES- samninginn, og það ætti nú endilega að fara að hefja samningaviðræður við ESB af alvöru!
Þetta var reyndar tíðrætt um helgina, enda var hún Lilja í heimsókn hjá mér. Dröslaðist í rútu alla leiðina frá Strassbourg, sem ég bara myndi aldrei nenna... En við áttum svaka góðan tíma saman, rólegheit og sól. Endalaus sól. Hún er búin að skína stanslaust í 2 vikur, og 20-25 stiga hiti uppá hvern dag, þetta fer nú bara alveg að verða gott í bili held ég... Enda hefur maí ekki verið svona góður í Belgíu í meira en öld, sagði kennarinn minn áðan.
En Liljuheimsókn var mega næs. Sýndi henni allt það merkilegasta í Leuven, við sáum fullt af froskum fjölga sér, new mexico, café komeet og nosh. Bara næs! Svo þegar hún var farin hljóp ég í síðasta skiptið í bili, því miður :(
Í gær skelltum við Íslendingarnir okkur svo á ströndina til Ostende. Það var GEÐVEIKT! Atlantshafið var að vísu pínu kalt, en vandist furðu fljótt. Hræðilega gaman að leika sér í öldunum. Mér fannst ég nú ekkert liggja neitt mikið í sólbaði. Plús ég var staðráðin í að fá lit á mallann, fannst ekkert svo hlýtt útaf vindinum og hélt að sólin í maí væri nú ekki svo sterk, og þar af leiðandi bara með sólarvörn á öxlunum... Boy I was wrong! Kom heim í gærkveldi, og ég er lobster! Beint í kalt bað og þurfti að taka 3 verkjatöflur til að geta sofnað. Í gammosíum, sokkum og langermabol btw... Ég hef sko aldrei brunnið svona mikið!
Þetta er mynd af mér, nýkomin heim að væla í mömmu minni á skype... En svo fékk ég eitthvað mega krem í apótekinu í morgun, sem svínvirkar. Er orðin passlega brún uppað brjóstum, restin er ennþá rauð, en held það lagist fljótlega =)
En það var líka ekki ástæðan fyrir að ég vaknaði klukkan 6 í morgun. Onei...
Ég hef verið bitin í aðra ristina fyrir svona 1-2 mánuði, pottþétt af köngulónni sem ég sópaði út um daginn... og það klæjaði bara stundum, og ég bar á það og hugsaði svo ekkert útí þetta. Svo í gær byrjaði það aðeins að hlaupa upp, og hélt áfram. Og áfram. Og ég gat ekki sofið. Svo ég fór til læknis í dag. Og þá kemur í ljós að ég er með sýkingu í löppinni. Hún er tvöföld og ég get ekki gengið. Er komin á sýklalyf og sterakrem og þarf að fara aftur til læknis á föstudaginn. Þess vegna elska ég EES- samninginn. Því það kostar að fara til læknis, og fátækir námsmenn veifa ekki 100 evra seðlum hingað og þangað...
En það versta er, að ég á miða með lest til Frankfurt í fyrramálið!
Fjóla er loksins, loksins að koma, og þá get ég ekki gengið :( En ég held í vonina að þessi lyf geri kraftaverk í nótt. Keypti líka sun lolly til að kæla, en ég borðaði hann... Sem betur fer er Fjóla 3/4 sjúkraþjálfari, og Gerða frænka sem við ætlum að gista hjá í Þýskalandi er splunkunýr læknir =)
Úff, þetta er orðin soldið löng færsla... Og ég á eftir að fara í bað og pakka niður og skrifa 1/2 ritgerð fyrir svefninn...
Tek sko sjúkratryggingakortið með til öryggis... hef aldrei farið á spítala í Þýskalandi.
Og Þórdís mín, onei, ég get ekki sett ítalska kjúklinginn uppskriftina hingað, því ég fattaði hana ekki sjálf... plús það er leyndó :)
Knús í krús
Magga
Já... þannig er það bara!
Ég er alveg dottin ofan í þessa hljómsveit, mér finnst hún passa svo vel við andrúmsloftið úti þessa dagana. Gærdeginum var einmitt eytt í sólbaði á Oude Markt... bara næs.
Og núna er ég að reyna og reyna og reyna að skrifa critical comment um þegar Bretar stofnuðu EFTA, bara of leiðinlegt.
En ef ég þekki mig rétt, þá fer ég ekki að sofa fyrr en það er búið, svo það er kannski bara best að bretta upp ermarnar...
Annars ætlaði ég bara að tilkynna að ég var að búa til nýja síðu. Hún heitir Tilraunaeldhús Margrétar og er þarna í horninu. Úje. Svo núna vill ég að allir eldi og segi mér hvernig smakkaðist. Svei mér þá, ég ætti að opna veitingastað. Því ég er mega góður kokkur..
Alltaf ein og ein ný mynd á flickrinu.
Knús í krús
Hæ!
Þeir sem að horfðu á veðurspánna síðustu helgi og öfunduðu mig af 22 stiga hitanum úti, geta hætt því. Ég sat á rassgatinu alla helgina og fór ekki út, fyrr en klukkan hálf sex á laugardeginum, rekin áfram að þörf í góða kaffið, og svo heim aftur. Og skrifaði og skrifaði fram á þriðjudagsnótt. Og ég er líka búin með Brussel ritgerðina! Vúhhú =) Og dottin ofan í hvað mér finnst eftirlitsstofnun EFTA mega merkilegt fyrirbæri... sooooorgleg kona!
Kíkti reyndar út í 2 bjóra á laugardagskvöldið, og that´s it. Loksins þegar ég man eftir að skrifa hvað ég hef verið að gera hérna í Belgíu, þá geri ég ekki neitt... dæmigert!
Ég fékk reyndar þetta nýja fína hlaupaprógramm á þriðjudaginn, ekkert smá spennó. Og gengur vel, so far so good. Stefni á að geta haldið við í fjölskylduna mína allavega hálfa leiðina þegar ég kem heim, sem er nú bara ágætis takmark útaf fyrir sig, þeir sem hafa séð þær mæðgur hlaupa skilja mig nú alveg...
Þar sem ég var búin að vera svona mega dugleg að skrifa alla helgina, ákvað ég að verðlauna mig í gær og tók allan daginn í frí. Sem var æði. Fór á bókasafnið og náði mér í spennandi heimildir fyrir BA, og beygla á Nosh með Evu minni og keypti mér smá dót og tékkaði á lestarmiðum til Frankfurt eftir 2 vikur og svona dúllerí. Og reyndar 2 og 1/2 tími í ræktinni, en það var bara vegna þess að ég komst að þeirri niðurstöðu að ég og spinningkennarinn deilum ekki sama tónlistarsmekk. Ég hef aldrei séð nokkurn mann jafn æstan yfir einhverju ömurlegu 80´s lagi... Daddy coooool... ég æli. Ég held líka að ég hafi óverdósað á spinning á menntaskólaárunum. Svo ég er bara hætt. Endaði svo daginn með Evu að horfa á stelpumynd. Becoming Jane. Ég fékk bara tár í augun, og svo er kallinn þarna svo mega sætur.
Og í dag er allt lokað. Svo það er tiltektardagur á Bogaardenstraat. Og ritgerðarvinna. Úje, allt að gerast í útlöndum...
Jæja, þá er ég farin að taka til, svo ég komist nú einhverntíman út í labbitúr. Svaka gott veður úti =) Held ég...
Ég þakka annars óvenju mikið af kommentum við síðustu færslu, sæta fólk. Lov jú all.
Já og próftaflan er komin, en ég á eftir að tuða, svo ég veit ekkert hvenær ég kem heim.. Ég skil bara ekkert afhverju þeir eru að hafa próftíðina svona langa og svo á bara að hrúga öllum prófunum manns á eina viku! Já nei takk! Ekki það að ég vilji ekki koma heim, ég vil bara líka ná þessum prófum...
knús í krús
Hæ!
Ég er með helling af fréttum!
Í fyrsta lagi, þá fékk ég póstkort frá systur minni í gær, sem er nú ekki merkilegt því hún er alltaf að senda mér póstkort... Nema hvað, þar stóð að hún myndi lenda í Frankfurt 14. maí og á flug til baka 19. maí! Ég fór næstum því að grenja úr gleði =) Ætla að fara og sækja hana á flugvöllinn og við ætlum að spóka okkur um í Þýskalandi í einn dag áður en við förum svo aftur til Belgíu og eigum yndislegan tíma saman. Bara rólegheit, sól og sumar, ekkert Brugge, ekkert sight seeing, bara Stella á Oude Markt, New Mexico og bbq...
OG, ég var í ræktinni áðan, sem er nú heldur ekki í frásögur færandi, minding my own buissness á hlaupabrettinu þegar ég lít upp á sjónvarpið. Og var þá ekki bara verið að sýna frá þegar kallinn lamdi lögguna á Kirkjusandi á fimmtudaginn! Alveg svaka langt, ég var nú bara fegin að það skildi enginn íslensku nema ég sko... fannst bæði lögreglan og vörubílstjórarnir vera hálf kjánaleg... en mér finnst þetta samt stórmerkilegt!
Jæja, ég ætlaði að fara að skrifa hvað á daga mína hefur drifið, en ég þoli ekki upptalningar... Bara bókó og kósíheit með fínum pásum inná milli. Hefur farið lítið fyrir bjórdrykkju undanfarið, enda er bara ágætt að taka sér pásu í því, plús bjór er fitandi og ég er að reyna að koma mér í betra form. Sló einmitt persónulegt met á hlaupabrettinu áðan, mega stolt =) Fæ nýtt prógramm á þriðjudaginn, við ætlum að fara að leggja áherslu á hlaupin og formun, mér finnst það ekkert smá spennandi... hahaha
Jæja, þessi ritgerð skrifar sig ekki sjálf, þarf að vera búin með allt svona dúllerí fyrir 14. maí, svo það er best að spíta í lófana...
Ciao
Og já... það er ennþá sumarveður og næs, og ógeðslega mikið af pöddum og ég hef aldrei séð svona mikið af hrossaflugum á ævi minni!
Vorið er loksins, loksins komið til Belgíu!
Ég og Eva brutumst inn til Völu í gær og fórum í sólbað á svölunum, reyndar bara í klukkutíma, en djöfull var næs að sitja bara í sólinni og vera heitt... Já, það er bara heitt... Ég er allavega búin að leggja vetrarkápunni og stígvélunum í bili, farin að sjá fram á fína daga á stuttermabol og pilsi, veiiii! Synd að ég eigi eftir að skrifa 3 ritgerðir og 2 critical comments, sem krefst innisetu við tölvuna...
Ok, ég var búin að skrifa ritgerð um bókasafnið, hún var leiðinleg.
Ritgerðarskrif ganga ágætlega, bara verst að leiðbeinandinn svarar ekki tölvupóstinum mínum og ég er búin að senda 2 og ég vil ekki vera dónaleg, þannig að ég er bara að leiðbeina sjálfri mér á meðan, og er hæstánægð með afraksturinn. Jájájá, alveg viss um að þetta verður tímamótameistaraverk á 30 bls... sérstaklega í þessu ljósi... Magga komin með tromp :)
Djók.
Jæja, ég fékk mér rauðvínsglas til að drekka með lestrinum, glasið er að verða búið og ég er ekki byrjuð að lesa. Og það er 18 stiga hiti á miðvikudaginn... lífið er ljúft!
Knús í krús
Ég ætlaði sko að blogga miklu miklu meira, ég bara gleymi alltaf öllu um leið og ég logga mig hingað inn, sorrý...
Já, og ég er ennþá að fara í heimsreisu, úje
Þegar ég byrjaði að blogga, sem var vorið 2001, þá var ekki til neitt sem hét commentakerfi. Ég man að í öðrum bekk fékk ég mér gestabók og fór að rífa kjaft við Finn á henni... Góð saga. Ég vil fá comment á bloggið mitt. Bara eitt svona láttu þér batna Magga, ömó að vera einn veikur í útlöndum eða eitthvað... Já ég er veik. Eða eitthvað. Mér er búið að vera óglatt með æluna í hálsinum í tvo daga, og það er ömurlegt! Sérstaklega afþví að ég fékk pakka frá Íslandi í dag. Með þristum og nóa súkkulaði og apollo lakkrís. nammi nammm :p
Mamma sendi mér líka bók. Sem heitir "Þú ert yndisleg dóttir". Enda er ég yndisleg dóttir... Vegna þess að eftir 23 og hálft ár, þá held ég að mamma mín sé ennþá rólegust þegar ég sef... ég er ekki búin að segja henni frá heimsreisunni sem ég er að plana í huganum núna :S En allavega, mamma merkti við eina blaðsíðu í bókinni, og mér fannst það svo fallegt að ég bara varð að setja það hérna inn..
Stundum vildi ég að ég gæti látið rætast úr öllu hjá þér. Stundum vildi ég að ég ætti nóga peninga til þess að veita þér það sem þig langar í. Stundum vildi ég að ég ætti fjársjóð sem að þú fengir í arf.
Ég gaf þér það sem ég átti - fimm næm skilningarvit, veröldina sem umlykur þig. Taktu það allt, bættu undrum þínum við öll önnur undur og miðlaðu til annarra hæfileikanum til að elska. Það nægir.
Ok, ég er ekki viss hvort hún hafi verið að meina þetta eða hitt, en hitt var um að knúsa ketti og að upplifa heiminn í kringum sig, og ég er endalaust að því hvort sem er... en ég elska þig elsku mamma mín =)
Annars lánaði ég íbúðina mína fyrir afmælið hennar Kötu um helgina. Það var súperstuð... Svo læstist ég inni á mínu eigin klósetti. Hundlengi. Gunni þurfti að skríða inn um baðherbergisgluggann hjá mér og ég hef ekki hugmynd um hvernig hann opnaði.. Og allir þurftu að fara til Völu að pissa, því það komst enginn inn. Góð saga. Líka rosalegt djamm. Bara gaman að því. Svona tveimur dögum seinna allavega...
Sá sem getur sagt úr hvaða lagi fyrirsögnin er fær súkkulaði. Sko Leonidas! Ég er glorhungruð. Kannski bara hætt með ógleðispesti =) Kebab kallinn veit hvernig kebab ég vill.... Ég er hætt að fara til hans í bili bara...  Sem þýðir reyndar að ég þarf að treysta á sjálfa mig í eldamennsku, veit ekki hvort það sé sniðugt.
Jæja! Þarf að klára Political Marketing bókina og senda spurningarnar á kennarann á innan við 3 tímum, mér finnst þetta bara of mikið common sense til að vera að pæla í einhverjum spurningum, hólí mólí!
Knús og takk fyrir commentin sem þið eruð að fara að skrifa =) Lov jú
Cheer up sleepy Jean
<object width='425' height='350'><param name='movie' value='http://www.youtube.com/v/kxz_JBuyF4I'></param><param name='wmode' value='transparent'></param><embed src='http://www.youtube.com/v/kxz_JBuyF4I&rel=0' type='application/x-shockwave-flash' wmode='transparent' width='425' height='350'></embed></object>
Ég ætlaði að blogga, en ég bara hef ekkert að segja... Látið þetta lag fylgja ykkur inní helgina, ást og friður
Magga
Ég fór uppí rúm með bók á fimmtudagskvöldið, ætlaði bara að lesa einn kafla fyrir svefninn. Ég lagði bókina frá mér klukkan hálf átta morguninn eftir. Ég er ennþá að hugsa um þessa bók, hún tók allan tilfinningaskalann, ég hló og grét og varð glöð og reið og sorgmædd... á bara varla til orð. Mæli óhikað með Þúsund bjartar sólir fyrir alla þá sem hafa ekki nú þegar lesið hana.
Annars komu ferðalangarnir heim á föstudaginn. Og ég er búin að djamma alla helgina. Úff! Þannig að núna verður maður bara að vera duglegur að passa uppá sjálfan sig næstu dagana. En allt í lagi, mæting á bókasafnið klukkan 10 í fyrramálið, næsta vika verður tekin í lærdóm og ekkert annað.
Vorið er að koma í Belgíu. Það er yndislegt. Mig langar samt heim til Íslands. Og ég ætla að koma heim til Íslands og kannski bara vera þar í langan tíma. Og ég hlakka til =)
Ég hljóp í gær, í dag er ég að drepast úr strengjum. Og ég er ömurlegur bloggari! Jeminn eini!
Farin að elda kvöldmat og laga til í hausnum á mér eftir helgina!
Ciao
Ég keypti kaffi á laugardaginn. Það er svo ógeðslega gott að ég get ekki hætt að drekka það. Sem gerir það að verkum að ég sef ekki. Það og allar ímynduðu moskítóflugurnar í herberginu. Það er eitur í spreybrúsa við hliðina á rúminu mínu.
Hefur einhver pælt í því, afhverju allt fólk sem vinnur í bakaríum er svona ógeðslega næs? Það er bara næs fólk sem vinnur í bakaríum held ég. Og stólarnir á bókasöfnunum hérna eru harðir. Allir saman. Ég hugsa bara hlýlega til bókhlöðunnar núna, þau eru með mýkri stóla. Og enga Belgakjána sem kunna ekki að þegja.
Já, og ég var að reikna út. Námslánin mín eru búin að lækka um sirka 240 evrur á mánuði síðan í janúar. Útaf genginu. Það er ekki falleg saga.
En fallega sagan er að 17. apríl verð ég búin með eitt námskeið. Vúhhú! (Nema prófið... en búin að lesa... )
Þess vegna ætla ég að lesa Political Marketing fram að spinning.
Djöfull er ég stolt af nýja lífinu mínu!
Ég er bara alls ekki sátt við þennan sumartíma. Mér finnst bara frekar skítt að einhver geti bara tekið heilan klukkutíma af mér eins og ekkert sé!
Ok, ég veit að ég fékk auka klukkutíma í haust, en ég var ekki skynsöm, ég eyddi honum í baði... öllum.
Ég fattaði í nótt að ég væri að missa einn klukkutíma. Sem gerði mig svo stressaða yfir tíma yfir höfuð að ég sofnaði ekki fyrr en 6 í morgun (sem hefði átt að vera 5).
Jájájá, Magga kjánaprik var að fatta að hún hefur ekki nema 2 mánuði. Skrítið hvað tíminn flýgur alltaf frá manni. Þannig að næstu 2 mánuðir munu fara í að sitja á rassinum og reyna að koma einhverju í verk. Tek mér bara pásu ef Jónsi kemur. Svo er ég komin með með tjaldsvæðisþrá... sem er eiginlega bara fyndið. En ég ætla að sjá til.
Það er reyndar ekkert skrítið að mann langi frekar til að njóta íslenska sumarsins úti í náttúrunni heldur en að fara að finna sér fullorðinsvinnu til tilbreytingar...
Og Halla kom með ost. Og í gær, eftir langa leit fann ég ostaskera. Það er æði. Ristað brauð með osti og sultu í matinn... nammi nammi namm...
Jájájá, á eftir að blogga á hverjum degi næstu 2 mánuðina, því einhvernvegin verð ég að halda geðheilsunni... sem segir bara það að törnin er byrjuð.
Bring it on!
Ok, Nato var ekkert leiðinlegt, bara misáhugavert...
Það er loksins, loksins komið vor! Ég er hoppandi kát yfir því.
En já, Halla kom og fór, það var gaman að sjá hana og Birki, og svo kom hún Erla mín á sunnudaginn. Og mikið var það yndislegt.
Við grilluðum íslenskt lambakjöt á sunnudagskvöldið, með kartöflusalati ala mamma mín og piparostarjómasveppasósu og salati og pylsur og það var svo gott. Og svo var páskaegg í eftirmatinn, sem var líka rosa gott. Og á mánudeginum borðuðum við svaka morgunmat og fórum svo í labbitúr, og það var ísjökulkalt. Og svo byrjaði að snjóa! Og engin smá snjókorn... Bara eins og risa haglél, þau voru meira að segja lengi að bráðna í munninum á mér. Það var fínt að fá snjó, eða hefði verið í desember... ekki lok mars. Við fórum líka til Brussel. Ég ákvað að afneita kuldanum og fór í sumarkápu og pilsi... það var ekkert rosalega sniðugt. En við fórum í verslunarferð í innflytjendahverfinu, vill svo skemmtilega til að það er við hliðina á rauða hverfinu, svo ég fékk að kíkka pínu í gluggana líka. Og Atomium, þá er það búið... búin að fara tvisvar, fer ekki aftur... Og fullt af kúrustundum undir sæng og borða góðan mat og Nosh og labba mikið. Bara yndislegt.
Og síðan er ég bara búin að vera í rólegheitunum og reyna að læra eitthvað. Íslandsförinni er frestað um óákveðinn tíma, núna er vika eftir af páskafríinu sem ég verð að nota í að reyna að lesa upp námsefnið, vera ógó dugleg. Svo er BA, það er alveg að komast á skrið, og svo tvær ritgerðir í viðbót, en ég veit alveg hvað ég ætla að skrifa um, svo það er pís of keik...
ok, nýjar myndir á flickr og facebook
knús á línuna!
Magga
... Það þýðir ekkert að láta þessa síðu deyja bara... Ég á nú einu sinni heima í útlöndum!
En þeir sem þekkja mig vita að síðustu dagar eru búnir að vera mjög erfiðir, en það er allt á uppleið vona ég. Auðvitað koma slæmir dagar og góðir dagar, en ég vona bara að góðu dögunum fari að fjölga með hækkandi sól. Svo er ég að íhuga það að koma í smá heimsókn til Íslands eftir 10 daga, en ég get ekki ákveðið mig hvort að ég vilji gera það eða harka af mér hérna í Belgíu.
Hvað er búið að gerast síðan síðast?
Hmmm...
Man ekki. En stjórnmálafræðin kom hingað í síðustu viku og ég fór með þeim í nokkrar heimsóknir, hefði samt viljað fara í fleiri, en vonandi kemst ég bara seinna. Allavega drepleiðinlegt NATO og sendiráðið, sem var æði og ég glósaði eins og bjáni. Þessi vika er bara búin að fara í rólegheit og uppbyggingu og andlegan undirbúning. Halla frænka er að koma í dagsferð til mín á laugardaginn, og Erla kemur á sunnudaginn og ætlar að stoppa í 3 nætur og ég hlakka svo til =) Ég er sko búin að panta borð á New Mexico svo við fáum örugglega besta burritos í heiminum, og kannski eina litla margaritu líka...
Annars eru nú engir páskar hérna í Belgíu, og ég sem hélt þetta væri kaþólskt land... Allar búðir opnar í dag og á morgun, það er bara á páskadag sem þeir fara í hátíðarskapið, og kannski annan í páskum...  En það er fínt, ég þarf að kaupa grill.
Jæja, farin að ganga frá þvotti, það verður sko allt súperfínt í höllinni þegar ég fæ alla gestina mína, vííí ég hlakka svo til! =)
Kyss og knús
Magga
Escape myself
<object width='425' height='350'><param name='movie' value='http://www.youtube.com/v/oZskFS6GMnw'></param><param name='wmode' value='transparent'></param><embed src='http://www.youtube.com/v/oZskFS6GMnw&rel=0' type='application/x-shockwave-flash' wmode='transparent' width='425' height='350'></embed></object>
Ég held ég hafi bara sjaldan fundið neitt eins lýsandi fyrir ruglið sem er í gangi þessa dagana...
Kem aftur þegar sálin verður komin í jafnvægi, kyss og knús á meðan!
Úff úff úff!
Alltaf þegar ég djamma með þessum Íslendingum, þá fer allt í bál og brand!
Eða þannig... Er allavega búin að liggja uppí sófa í allt kvöld og horfa á heila 7 þætti af brothers and sisters (sem ég elska!) og ekki koma neinu í verk í dag...
Og ég ýtti á einhvern takka á tölvunni minni, og allir stafirnir minnkuðu og ég kann ekki að breyta því, þannig að ég tek það til baka að ég sé tölvunörd...
Og byrjaði loksins á BA í gær, mega góð tilfinning. Hálfnað er verk þá hafið er, eða eitthvað.
Blogga seinna, ég ætla bara að skríða aftur upp í sófann. Tókst líka að sofa til 4 í dag, fjárans helgar...
Ræktin í fyrramálið og svo úber dugleg að læra... jájájá, nýtt líf á hverju sunnudagskvöldi =)
Bæ
Hæ hó!
Ég sá að það var einhver að googla skiptinámi í Leuven (ég er úber tölvunörd...), endilega hafðu samband við mig ef þú kemur hingað aftur, ég á margar góðar sögur sem að rata ekki á alheimsnetið...
En góða sagan já.
Ég ákvað að vakna í morgun. Það tók ekki nema tvær vekjaraklukkur, og sms frá belganum til að drulla mér fram úr, og eftir rosaleg átök var ég mætt í skólann klukkan 11 (búin að snúa við sólarhringnum milljón sinnum, svo ekki orð!)
Og ég var ægilega stolt af mér að hafa rifið mig fram úr, mætti og settist og var að fara að taka stílabókina uppúr töskunni, þegar ég tók eftir því að kennarinn var allt í einu orðin sköllóttur. Og svo byrjaði hann að tala flæmsku! Mér leist nú ekkert á blikuna, svo ég kíkti í dagbókina mína. Svöl Magga... tíminn var frá 9-11.... Illa svekkt...
Góð saga.
Önnur góð saga. Skellti mér í kvöldmat til Antwerpen á föstudaginn. Hversu svalt er það, að faraí   kvöldmat þvert yfir landið, og það tekur ekki nema tæpan klukkutíma að keyra þangað, ha?
Annars er lífið ljúft. Ég er ógó dugleg í ræktinni, komst að því að ég er sterkari en meðal belgíska konan, veit ekki hvort það eigi að vera hrós eða hvað... komst nú líka að því í dag að ég er sterkari en fullt af belgískum strákum líka... spurning um að fara að fela sterana bara... djók.
Nóg að gerast framundan, ef að Fríða mundi eftir að taka frá miða er það Pétur Gautur í Brussel á föstudaginn, og svo almenn kósíheit og lærdómur um helgina. Svo er ekki nema rúm vika í að stjórnmálafræðin komi í Brusselferðina, og að sjálfsögðu er það sama vika og ég VERÐ að mæta í Political marketing... Þyrfti líka að vera byrjuð á BA, svona loksins ef ég fæ að sjá framan í leiðbeinandann minn, og undirbúa þessar heimsóknir, allavega andlega...
Jæja, tími til að lesa einn kafla í Europe Recast (aftur) fyrir svefninn... ætla sko að halda áfram að vera svona heilbrigð og fara að sofa fyrir miðnætti. Annars held ég að ég hafi heyrt í nágrönnunum mínum í nótt, og ég get svo svarið það að það var englasöngur miðað við á Íslandi í den...
Knús til allra, sorrý ég man aldrei neinar sögur
bæ